Skilaréttur
Vefverslun:
Framvísun reiknings eru skilyrði fyrir vöruskilum.
Eftir að kaupandi hefur móttekið vöru er hann hvattur til að yfirfara vöruna og ganga úr skugga um að reikningur sé í samræmi við pöntun. Viðskiptavinur hefur rétt á að skila ógallaðri vöru í allt að 14 daga frá því að viðskiptavinur veitti vörunni viðtöku og fá hana að fullu endurgreidda. Endurgreiðsla vegna vöruskila nær aðeins til sjálfs vöruverðsins en annar kostnaður, svo sem vegna flutnings til eða frá kaupanda, er á ábyrgð kaupanda.
Við vöruskil gilda eftirfarandi skilyrði:
- Að varan sé í fullkomnu lagi
- Að varan sé ónotuð
- Að varan sé í óuppteknum upprunalegum umbúðum
Gyeon.is metur söluhæfi skilavöru og áskilur sér rétt til að hafna vöruskilum eða bjóða takmarkaða endurgreiðslu ef skilyrðum er áfátt.
Upphæð vöru er ávallt endurgreidd inn á þann greiðslumiðil sem notaður var við kaupin.
Ef kaupandi telur sig hafa fengið afhenta gallaða vöru ber honum að tilkynna það um leið og galla er vart með því að senda tilkynningu þess efnis á netfangið: vefverslun@gyeon.is. Að öðrum kosti getur kaupandi glatað rétti sínum til endurgreiðslu. Framvísa þarf reikningi til staðfestingar að vara hafi verið keypt á Gyeon.is. Gölluð vara er endurgreidd ásamt sendingarkostnaði eða annað eintak af sömu vöru er sent til kaupanda honum að kostnaðarlausu.